Rekst­ur Lands­bréfa hf. skil­aði 702 millj­óna kr. hagn­aði á ár­inu 2016

Rekstur Landsbréfa gekk mjög vel á árinu 2016. Umsýsluþóknanir félagsins jukust um 32% á milli ára og skilaði félagið góðum hagnaði eða 702 milljónum króna, sem svarar til rúmlega 28,7% arðsemi eigin fjár.
9. febrúar 2017 - Landsbréf

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2016.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 702 milljónum króna á árinu 2016, samanborið við 616 milljóna króna hagnað fyrir rekstrarárið 2015.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.730 milljónum króna á árinu 2016 samanborið við 1.569 milljónir króna rekstrarárið 2015. 
  • Eigið fé Landsbréfa í árslok 2016 nam um 3.150 milljónum króna samanborið við 2.448 milljónir króna í lok 2015. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 112,58% samanborið við 86,46% árið áður, en hlutfall þetta má lægst vera 8%.
  • Í lok tímabilsins stýrðu Landsbréf eignum fyrir 31 sjóð og félög og eru hlutdeildarskírteinishafar í sjóðum félagsins um 13 þúsund talsins.
  • Starfsmenn voru 17  í árslok og var starfsmannafjöldi óbreyttur milli ára. 
  • Eignir í stýringu voru um 184 milljarðar króna í árslok samanborið við um 129 milljarða króna árið áður.

Rekstur Landsbréfa gekk mjög vel á árinu 2016. Umsýsluþóknanir félagsins jukust um 32% á milli ára og skilaði félagið góðum hagnaði eða 702 milljónum króna, sem svarar til rúmlega 28,7% arðsemi eigin fjár. Innlendur verðbréfamarkaður, einkum hlutabréfamarkaður, skilaði lakari ávöxtun en árið á undan, en þrátt fyrir það voru verðbréfa- og fjárfestingasjóðir Landsbréfa almennt að vaxa á árinu.  Á árinu voru stofnaðir fjórir nýir sjóðir. Af nýjum afurðum á árinu má nefna annars vegar fagfjárfestasjóðinn Landsbréf - Veðskuldabréfasjóð slhf., sem fjárfestir í fasteignatryggðum skuldaskjölum, og hins vegar fjárfestingarsjóðinn Landsbréf – Global Portfolio sem fjárfestir á erlendum verðbréfamörkuðum.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa: 

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu og hefur félagið fest sig í sessi sem eitt öflugasta sjóðstýringarfyrirtæki landsins. Á árinu varð verulegur vöxtur á eignum í stýringu Landsbréfa og almennt gekk rekstur sjóða vel.  Félagið leggur metnað í að hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspeglast það í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, þar sem er að finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.

Landsbréf - ársreikningur 2016 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
25. mars 2024
Hagnaður Landsbréfa 1.035 milljónir á árinu 2023
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2023.  Helstu niðurstöður eru þessar:
New temp image
5. jan. 2024
Afsláttur við kaup í sjóðum
Nú er veittur 100% afsláttur af gjaldi við kaup í sjóðum Landsbréfa ef keypt er í gegnum app eða netbanka Landsbankans. Afslátturinn gildir til og með 15. febrúar nk.
New temp image
22. ágúst 2023
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2023. 
New temp image
19. maí 2023
Horn IV fjárfestir í REA sem starfar í flugtengdri þjónustu á Keflavíkurflugvelli
Horn IV slhf., sem er framtakssjóður í rekstri Landsbréfa hf., hefur samið um kaup á 45% hlut í REA ehf. sem á íslensku flugafgreiðslufyrirtækin Airport Associates og SouthAir. Með kaupunum verður Horn IV stærsti einstaki hluthafi félagsins. Fyrirtækin hafa í yfir 25 ár boðið upp á flugtengda þjónustu fyrir flugrekendur á Keflavíkurflugvelli og eru með samninga við mörg af þeim flugfélögum sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli.
New temp image
24. mars 2023
Hagnaður Landsbréfa 814 milljónir króna á árinu 2022
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning fyrir árið 2022.  Helstu niðurstöður voru þessar:
New temp image
10. feb. 2023
Afsláttur við kaup í sjóðum í febrúar
Í febrúar er gefinn 100% afsláttur af gjaldi við kaup í sjóðum Landsbréfa ef keypt er í gegnum app eða netbanka Landsbankans. Afslátturinn gildir til og með 28. febrúar nk.
New temp image
15. nóv. 2022
Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í Eðalfangi sem fyrirhugar mikinn vöxt á næstu árum
Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. fjárfestir í Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi félagsins.  Um er að ræða  útgáfu nýs hlutafjár en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til nýtt fjármagn en heildarfjármögnun er 1.000 milljónir króna. Fjármagnið sem kemur inn í félagið verður nýtt til fjárfestinga í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu sem mun nýtast félaginu við uppbyggingu og eflingar á vinnslu til framleiðslu á laxi með áherslu á útflutning og til að fylgja eftir og efla sölu- og markaðsstarf á alþjóðlegum mörkuðum. 
New temp image
24. ágúst 2022
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2022.
New temp image
25. mars 2022
Hagnaður Landsbréfa 1.410 milljónir á árinu 2021
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2021. 
New temp image
7. mars 2022
Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í S4S
Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur gengið frá kaupum á hlut í fyrirtækinu S4S ehf. sem rekur verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskóinn, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. Dótturfélag fyrirtækisins er S4S tæki ehf. sem rekur tækjasölu og verkstæði BRP Ellingsen. Velta samstæðunnar árið 2021 voru tæpir fimm milljarðar króna.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur