Landsbréf - Eignadreifing virði hs.
Eignadreifing virði fjárfestir í innlendum og erlendum fjármálagerningum. Fjárfesting getur verið í stökum verðbréfum, hlutabréfum, skuldabréfum, peningamarkaðsgerningum og innlánum eða í hlutdeildarskírteinum sjóða sem fjárfesta í megindráttum í framangreindum eignaflokkum. Hámarksfjárfesting í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum er 40% af eignum sjóðsins og heildarfjárfesting í erlendum eignum skal ekki vera umfram 70% af eignum sjóðsins, þar af 30% að hámarki í skuldabréfum og 40% að hámarki í hlutabréfum. Eignadreifing virði hentar vel til að ávaxta sparnað í vel dreifðu eignasafni til meðallangs tíma, í 3 ár eða lengur.
Landsbréf – Eignadreifing virði hs. er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta.
Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað vegna verðbreytinga á eignum sjóðanna og vegna gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóða eru í erlendum gjaldmiðlum. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Sveiflur
Gengi
Nafnávöxtun á árinu
2019
2021
2018
2020
2017
Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.