Landsbréf - Úrvalsbréf hs.
Úrvalsbréf fjárfesta einkum í hlutabréfum félaga sem hafa verulegan hluta af starfsemi sinni á Íslandi og eru skráð í kauphöllinni Nasdaq Iceland og á vaxtarmarkaðnum First North. Sjóðurinn hefur heimild til að fjárfesta fyrir allt að 20% í óskráðum íslenskum hlutabréfum ásamt heimild til að fjárfesta í afleiðum. Sjóðurinn er góður kostur fyrir þá sem vilja ná góðri ávöxtun og dreifingu verðbréfaeignar með því að fjárfesta einkum í innlendum hlutabréfum. Úrvalsbréf henta vel til fjárfestingar til langs tíma, í 4 ár eða lengur.
Landsbréf – Úrvalsbréf hs. er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta.
Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað vegna verðbreytinga á eignum sjóðanna og vegna gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóða eru í erlendum gjaldmiðlum. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Sveiflur
Gengi
Nafnávöxtun á árinu
2019
2021
2018
2020
2017
Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.