Landsbréf - Veltubréf hs.
Veltubréf fjárfesta aðallega í innlánum hjá fjármálafyrirtækjum en sjóðurinn fær betri innlánskjör í krafti stærðar sinnar. Þá hefur sjóðurinn einnig heimild til að fjárfesta í verðbréfum með stuttan meðallíftíma útgefnum af ríkissjóði, sveitarfélögum og fjármálafyrirtækjum. Hámark á meðallíftíma sjóðsins er 180 dagar og vaxtaáhætta er því takmörkuð. Veltubréf henta vel til að ávaxta sparnað til skemmri eða lengri tíma. Ráðlagður fjárfestingartími er einn mánuður eða lengri.
Landsbréf – Veltubréf hs. er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta.
Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað vegna verðbreytinga á eignum sjóðanna og vegna gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóða eru í erlendum gjaldmiðlum. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Sveiflur
Gengi
Nafnávöxtun á árinu
2019
2021
2018
2020
2017
Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.