Landsbréf - Eignadreifing sjálfbær hs.
Eignadreifing sjálfbær hefur að markmiði að ná fram ávöxtun og dreifingu áhættu með sjálfbærni að leiðarljósi. Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í fjármálagerningum, svo sem hlutabréfum, skuldabréfum, hlutdeildarskírteinum útgefanda sem skara fram úr á sviði sjálfbærni. Sjóðurinn fjárfestir í innlendum og erlendum fjármálagerningum. Hámarksfjárfesting í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum er 70% af eignum sjóðsins og heildarfjárfesting í erlendum eignum skal ekki vera umfram 80% af eignum sjóðsins, þar af 50% að hámarki í skuldabréfum og 50% að hámarki í hlutabréfum. Eignadreifing sjálfbær hentar vel til að ávaxta sparnað í vel dreifðu eignasafni til meðallangs tíma, í 3 ár eða lengur.
Landsbréf – Eignadreifing sjálfbær hs. er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta.
Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað vegna verðbreytinga á eignum sjóðanna og vegna gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóða eru í erlendum gjaldmiðlum. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Sveiflur
Gengi
Nafnávöxtun á árinu
2019
2021
2018
2020
2017
Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.