Fréttir

Hagn­að­ur Lands­bréfa 814 millj­ón­ir króna á ár­inu 2022

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning fyrir árið 2022.  Helstu niðurstöður voru þessar:
24. mars 2023
  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa eftir skatta var tæpar 814 milljónir króna á árinu 2022 samanborið við 1410 milljónir króna árið áður.  
  • Hreinar rekstrartekjur námu tæpum 2.019 milljónum króna á árinu 2022 samanborið við 2.937 milljónir króna árið áður.
  • Eigið fé í lok árs 2022 var tæpar 3.783 milljónir króna samanborið við 5.969 milljónir króna í árslok 2021. Stjórn Landsbréfa mun leggja til á aðalfundi að greiddur verði 700 m. kr. arður til hluthafa, en arðgreiðsla árið áður voru 3 milljarðar króna. Landsbréf hf. er dótturfélag Landsbankans hf. og hluti af samstæðu hans.
  • Alls voru tæplega 20 þúsund sjóðfélagar í sjóðum Landsbréfa og voru eignir í eigna- og sjóðastýringu samtals um 456 milljarðar króna í lok árs 2022.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu 2022 og var hagnaður tæpar 814 milljónir króna. Sú fjárhæð er heldur lægri en árið áður, sem var metár sem einkenndist m.a. af miklum árangurstengdum þóknunum.

Árið 2022 var krefjandi ár bæði á fjármálamörkuðum hér á landi og erlendis. Á sama tíma og áhrif Covid heimsfaraldursins tóku að fjara út á fyrri hluta ársins þá hófust styrjaldarátök í Úkraínu og samhliða miklar verðhækkanir á hrávörumörkuðum sem höfðu mikil áhrif á fjármálamarkaði. Verðbólga óx hratt eftir því sem leið á árið og gilti það jafnt um Ísland og önnur lönd austan hafs og vestan. Seðlabankar um allan heim hafi hækkað vexti og sér ekki fyrir endann á því ferli. Það eru því krefjandi tímar á eignamörkuðum um þessar mundir og skiptir miklu máli að vandað sé til verka við ávöxtun fjármuna. Það er verkefni sem Landsbréf taka alvarlega, enda hafa Landsbréf um árabil skilað fjárfestum í sjóðum félagsins góðri ávöxtun og reynslumiklir starfsmenn félagsins leggja sig fram við að standa undir því trausti sem hinn mikli fjöldi sjóðfélaga sýnir Landsbréfum.  Landsbréf hafa um árabil verið í fararbroddi sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi og býður upp á fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða, auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta.“

Fjárhagsupplýsingar Landsbréfa

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
19. maí 2023

Horn IV fjárfestir í REA sem starfar í flugtengdri þjónustu á Keflavíkurflugvelli

Horn IV slhf., sem er framtakssjóður í rekstri Landsbréfa hf., hefur samið um kaup á 45% hlut í REA ehf. sem á íslensku flugafgreiðslufyrirtækin Airport Associates og SouthAir. Með kaupunum verður Horn IV stærsti einstaki hluthafi félagsins. Fyrirtækin hafa í yfir 25 ár boðið upp á flugtengda þjónustu fyrir flugrekendur á Keflavíkurflugvelli og eru með samninga við mörg af þeim flugfélögum sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli.
New temp image
10. feb. 2023

Afsláttur við kaup í sjóðum í febrúar

Í febrúar er gefinn 100% afsláttur af gjaldi við kaup í sjóðum Landsbréfa ef keypt er í gegnum app eða netbanka Landsbankans. Afslátturinn gildir til og með 28. febrúar nk.
New temp image
15. nóv. 2022

Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í Eðalfangi sem fyrirhugar mikinn vöxt á næstu árum

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. fjárfestir í Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi félagsins.  Um er að ræða  útgáfu nýs hlutafjár en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til nýtt fjármagn en heildarfjármögnun er 1.000 milljónir króna. Fjármagnið sem kemur inn í félagið verður nýtt til fjárfestinga í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu sem mun nýtast félaginu við uppbyggingu og eflingar á vinnslu til framleiðslu á laxi með áherslu á útflutning og til að fylgja eftir og efla sölu- og markaðsstarf á alþjóðlegum mörkuðum. 
New temp image
24. ágúst 2022

Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2022.
New temp image
25. mars 2022

Hagnaður Landsbréfa 1.410 milljónir á árinu 2021

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2021. 
New temp image
7. mars 2022

Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í S4S

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur gengið frá kaupum á hlut í fyrirtækinu S4S ehf. sem rekur verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskóinn, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. Dótturfélag fyrirtækisins er S4S tæki ehf. sem rekur tækjasölu og verkstæði BRP Ellingsen. Velta samstæðunnar árið 2021 voru tæpir fimm milljarðar króna.
New temp image
8. feb. 2022

Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu GoPro

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur gengið frá kaupum á 35% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu GoPro ehf. Við kaupin voru annars vegar keyptir hlutir af núverandi hluthöfum og hins vegar var hlutafé félagsins hækkað og skrifaði Horn IV sig fyrir allri þeirri hækkun. Með kaupunum verður Horn IV stærsti einstaki hluthafi félagsins. Fjármagnið sem kemur inn í félagið mun nýtast félaginu við uppbyggingu, þ.m.t. uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs á alþjóðlegum mörkuðum og fyrir nýjar lausnir félagins sem hafa verið í þróun undanfarin ár. Fyrirtækið hefur verið rekið með hagnaði og er eitt fárra fyrirtækja sem hefur verið á lista Creditinfo yfir fyrirmyndarfyrirtæki frá upphafi.
New temp image
19. ágúst 2021

Árshlutauppgjör Landsbréfa 30. júní 2021

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2021. Helstu niðurstöður voru þessar:
New temp image
2. júní 2021

Nýr fjárfestingarsjóður með sjálfbærni að leiðarljósi

Eignadreifing sjálfbær er nýr fjárfestingarsjóður Landsbréfa, dótturfélags Landsbankans. Markmið sjóðsins er að ná fram ávöxtun og dreifingu áhættu með sjálfbærni að leiðarljósi.
Vefkökur

Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur