Það tilkynnist hér með að þann 19. maí sl. staðfesti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands breytingar á reglum verðbréfasjóðsins Landsbréf – Markaðsbréf hs., kt. 670898-9469, en stjórn Landsbréfa hf., rekstrarfélags sjóðsins, hafði áður samþykkt reglubreytingarnar.
Þessi tilkynning kallar ekki á neinar aðgerðir af hálfu hlutdeildarskírteinishafa. Hún er einungis send í upplýsingaskyni þar sem lög kveða á um að öllum hlutdeildarskírteinishöfum skuli tilkynnt um reglubreytingar verðbréfasjóða, sbr. 4. mgr. 32. gr. laga nr. 116/2021, um verðbréfasjóði.
Reglubreytingarnar felast í því að fjárfestingastefnu sjóðsins var breytt sem hér segir:
- Lágmark fyrir skuldabréf útgefin af eða með ábyrgð sveitarfélaga var lækkað úr 20% í 0%, en það felur í sér að sjóðurinn er ekki skuldbundinn til að eiga nein skuldabréf sveitarfélaga.
- Sett var sérstök lína í fjárfestingarstefnuna um sértryggð skuldabréf með fjárfestingarvikmörkum 0-40%. Hér er ekki um efnislega breytingu að ræða heldur er verið að skýra framsetningu á fjárfestingarstefnunni.
- Texta sem náði áður m.a. yfir sértryggð skuldabréf og var „skuldabréf með tryggingum að baki og eignavarin skuldabréf“ breytt í „önnur skuldabréf með tryggingum að baki“. Hér er ekki um efnislega breytingu að ræða heldur er markmiðið að skýra framsetningu á fjárfestingarheimildum.
- Þá er skýrt tekið fram í fjárfestingarstefnunni að sjóðurinn geti nýtt sér heimildir í 5. og 6. mgr. 67. gr. laga nr. 116/2021, um verðbréfasjóði, til að fjárfesta meira í ríkisskuldabréfum, skuldabréfum sveitarfélaga og sértryggðum skuldabréfum en gildir almennt um önnur verðbréf.
- Ákvæði um kaupþóknun var breytt þannig að þóknun er lækkuð úr 1,0% í 0,25%.
Auk þessara breytinga voru gerðar smávægilegar lagfæringar á texta án þess að um efnislegar breytingar á reglunum væri að ræða.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og fjárfestingarstefnu hans
Aðrar upplýsingar um reglubreytingarnar og önnur atriði tengd sjóðnum er hægt að fá hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040 eða með pósti á netfangið vl@landsbankinn.is.









