Fyrsta fjárfesting Horns V styður áframhaldandi uppbyggingu og vöxt Lyfjavers.
Framtakssjóðurinn Horn V hefur undirritað samkomulag um fjárfestingu í Lyfjaveri ehf. sem felur í sér að sjóðurinn mun, að uppfylltum hefðbundnum fyrirvörum, þar á meðal samþykki Samkeppniseftirlitsins, eignast rúmlega þriðjungshlut í félaginu. Horn V tekur þátt í hlutafjáraukningu Lyfjavers með kaupum á nýju hlutafé félagsins. Fjárfestingin er mikilvægur liður í framtíðaráformum Lyfjavers um að nýta tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar og ytri vaxtar.
Lyfjaver er íslenskt lyfjafyrirtæki sem starfar bæði á smásölu- og heildsölumarkaði lyfja. Félagið rekur tvö apótek og lyfjaheildsölu, auk þess að hafa byggt upp leiðandi stöðu í vélskömmtun lyfja og lyfjaþjónustu við heilbrigðisstofnanir. Lyfjaver rekur jafnframt öfluga netverslun með lyf og aðrar vörur og þjónustar viðskiptavini um land allt. Þá rekur félagið einnig heilsuverslunina Heilsuver, sem býður upp á fjölbreytt úrval fæðubótarefna, heilsutengdra matvara og lífrænna snyrtivara. Félagið hefur vaxið hratt á undanförnum árum og treyst stöðu sína á íslenskum markaði.
Markmið fjárfestingar Horns V er að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og vöxt Lyfjavers á innlendum markaði, meðal annars með eflingu rekstrar, innviða og þjónustuframboðs.
„Við erum mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við Horn V um aðkomu að Lyfjaveri. Aðkoma öflugs langtímafjárfestis er mikilvægur áfangi fyrir félagið og styður við næstu skref í uppbyggingu þess,“ segir Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers.
Horn V er framtakssjóður í rekstri Landsbréfa sem hóf starfsemi á síðasta ári. Sjóðurinn byggir á áralangri reynslu Landsbréfa af rekstri framtakssjóða og er 15 ma.kr. að stærð. Fjárfestingin í Lyfjaveri er fyrsta fjárfesting sjóðsins og fjárfestingatímabil hans stendur til loka júlí 2028.
Fjárfestinging í Lyfjaveri endurspeglar fjárfestingarstefnu Horns V um að fjárfesta í traustum íslenskum fyrirtækjum með sterka markaðsstöðu og skýra vaxtarmöguleika. „Lyfjaver hefur á undanförnum árum byggt upp sterkan og stöðugan rekstur og skapað sér góða stöðu á íslenskum lyfjamarkaði. Félagið hefur fjölbreyttar og öflugar tekjustoðir og við sjáum góð tækifæri til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu félagsins og hlökkum til samstarfsins,“ segja Arnar Arngrímsson og Berglind Halldórsdóttir, fjárfestingastjórar hjá Landsbréfum.
Gert er ráð fyrir að fjárfestingin gangi í gegn að uppfylltum hefðbundnum fyrirvörum, þar á meðal samþykki Samkeppniseftirlitsins. LOGOS var ráðgjafi seljanda en IUS Law var ráðgjafi kaupanda.









