Þann 1. apríl 2026 staðfesti Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands breytingar á reglum vísitölusjóðsins Landsbréf – Nordic 40 hs. sem stjórn Landsbréfa hf. hafði áður samþykkt.
Breytingarnar felast í því að opnunartíma sjóðsins tekur nú mið af opnunartíma þeirra kauphalla sem eignir sjóðsins hafa verið teknar til viðskipta. Landsbréf - Nordic 40 er vísitölusjóður og fjárfestir eingöngu í þeim norrænu hlutabréfum sem mynda norrænu hlutabréfavísitöluna OMXN40, en það eru stærstu og veltumestu norrænu hlutafélögin í Nasdaq Nordic kauphöllunum og er afgreiðslutími (opnunartími) sjóðsins hér eftir þá daga sem kauphallirnar á Íslandi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð eru opnar.









