Hagn­að­ur Lands­bréfa 417 millj­ón­ir króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2018

Hreinar rekstrartekjur námu 939 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2018. Hagnaður eftir skatta af rekstri á fyrri hluta ársins nam 418 milljónum króna. Eigið fé Landsbréfa í lok tímabilsins nam 3.581 milljónum króna.
30. ágúst 2018

Landsbréf hf. hafa í dag birt árshlutareikning sinn vegna rekstrar á fyrri hluta ársins 2018. Hreinar rekstrartekjur námu 939 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2018, en námu 1.135 milljónum króna á sama tímabili á árinu 2017. Hagnaður eftir skatta af rekstri á fyrri hluta ársins nam 418 milljónum króna, samanborið við 556 milljón króna hagnað á sama tíma á síðasta ári. Eigið fé Landsbréfa í lok tímabilsins nam 3.581 milljónum króna og eiginfjárhlutfall reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 92,66%, en þetta hlutfall má ekki vera undir 8%. Í lok júní áttu tæplega 13 þúsund einstaklingar og lögaðilar fjármuni í sjóðum í stýringu Landsbréfa og voru eignir í stýringu um 152 milljarðar króna.

Landsbréf eru rekstrarfélag verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu, auk þess sem félagið hefur starfsleyfi til eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa segir:

„Rekstur Landsbréfa hefur gengið vel það sem af er ári. Þrátt fyrir að umhverfi íslenskra sjóðastýringarfyrirtækja hafi verið að mörgu leyti krefjandi á undanförnum misserum er rekstrarniðurstaða umfram áætlanir. Lækkun rekstrartekna og hagnaðar milli tímabila má að stærstum hluta rekja til lægri árangurstengdra þóknana af fagfjárfestasjóðum. Sjóðaframboð félagsins er fjölbreytt og er þar að finna sjóði sem henta flestum fjárfestum. Ánægjulegt er að sjá stöðuga fjölgun þeirra sem eru í reglulegum sparnaði í sjóðum félagsins. Landsbréf eru í fararbroddi á íslenskum fjármálamarkaði og hafa sjóðir félagsins á liðnum misserum almennt skilað fjárfestum góðri ávöxtun. Landsbréf munu halda áfram að leggja metnað sinn í að stýra þeim fjármunum sem félaginu er treyst fyrir á öruggan og markvissan hátt í þágu sjóðfélaga.“

Landsbréf - Árshlutareikningur fyrri árshelmings 2018 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
25. mars 2024
Hagnaður Landsbréfa 1.035 milljónir á árinu 2023
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2023.  Helstu niðurstöður eru þessar:
New temp image
5. jan. 2024
Afsláttur við kaup í sjóðum
Nú er veittur 100% afsláttur af gjaldi við kaup í sjóðum Landsbréfa ef keypt er í gegnum app eða netbanka Landsbankans. Afslátturinn gildir til og með 15. febrúar nk.
New temp image
22. ágúst 2023
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2023. 
New temp image
19. maí 2023
Horn IV fjárfestir í REA sem starfar í flugtengdri þjónustu á Keflavíkurflugvelli
Horn IV slhf., sem er framtakssjóður í rekstri Landsbréfa hf., hefur samið um kaup á 45% hlut í REA ehf. sem á íslensku flugafgreiðslufyrirtækin Airport Associates og SouthAir. Með kaupunum verður Horn IV stærsti einstaki hluthafi félagsins. Fyrirtækin hafa í yfir 25 ár boðið upp á flugtengda þjónustu fyrir flugrekendur á Keflavíkurflugvelli og eru með samninga við mörg af þeim flugfélögum sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli.
New temp image
24. mars 2023
Hagnaður Landsbréfa 814 milljónir króna á árinu 2022
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning fyrir árið 2022.  Helstu niðurstöður voru þessar:
New temp image
10. feb. 2023
Afsláttur við kaup í sjóðum í febrúar
Í febrúar er gefinn 100% afsláttur af gjaldi við kaup í sjóðum Landsbréfa ef keypt er í gegnum app eða netbanka Landsbankans. Afslátturinn gildir til og með 28. febrúar nk.
New temp image
15. nóv. 2022
Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í Eðalfangi sem fyrirhugar mikinn vöxt á næstu árum
Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. fjárfestir í Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi félagsins.  Um er að ræða  útgáfu nýs hlutafjár en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til nýtt fjármagn en heildarfjármögnun er 1.000 milljónir króna. Fjármagnið sem kemur inn í félagið verður nýtt til fjárfestinga í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu sem mun nýtast félaginu við uppbyggingu og eflingar á vinnslu til framleiðslu á laxi með áherslu á útflutning og til að fylgja eftir og efla sölu- og markaðsstarf á alþjóðlegum mörkuðum. 
New temp image
24. ágúst 2022
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2022.
New temp image
25. mars 2022
Hagnaður Landsbréfa 1.410 milljónir á árinu 2021
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2021. 
New temp image
7. mars 2022
Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í S4S
Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur gengið frá kaupum á hlut í fyrirtækinu S4S ehf. sem rekur verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskóinn, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. Dótturfélag fyrirtækisins er S4S tæki ehf. sem rekur tækjasölu og verkstæði BRP Ellingsen. Velta samstæðunnar árið 2021 voru tæpir fimm milljarðar króna.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur