Fréttir

Fram­taks­sjóð­ur­inn Horn IV fjár­fest­ir í ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu GoPro

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur gengið frá kaupum á 35% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu GoPro ehf. Við kaupin voru annars vegar keyptir hlutir af núverandi hluthöfum og hins vegar var hlutafé félagsins hækkað og skrifaði Horn IV sig fyrir allri þeirri hækkun. Með kaupunum verður Horn IV stærsti einstaki hluthafi félagsins. Fjármagnið sem kemur inn í félagið mun nýtast félaginu við uppbyggingu, þ.m.t. uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs á alþjóðlegum mörkuðum og fyrir nýjar lausnir félagins sem hafa verið í þróun undanfarin ár. Fyrirtækið hefur verið rekið með hagnaði og er eitt fárra fyrirtækja sem hefur verið á lista Creditinfo yfir fyrirmyndarfyrirtæki frá upphafi.
8. febrúar 2022 - Landsbréf

GoPro er í grunninn tvö íslensk hugbúnaðarfyrirtæki; Hugvit hf. og Canalix ehf. Bæði fyrirtækin þróa og selja hugbúnað fyrir mála- og skjalastjórnun, hvort á sínu sviði. Hugvit einbeitir sér að þróun skýjalausna fyrir millistór fyrirtæki, stofnanir og sveitafélög, hérlendis og erlendis en Canalix að reglustýrðum ferlum fyrir stórar stofnanir, eingöngu fyrir erlendan markað. GoPro félögin eru með rúmlega 60 starfsmenn í 5 löndum og viðskiptavini í 8 löndum.

Horn IV er nýr framtakssjóður í rekstri Landsbréfa sem hóf starfsemi á síðasta ári. Sjóðurinn er 15 ma. kr. að stærð og eru kaupin fyrsta fjárfesting sjóðsins en fjárfestingartímabil hans er til loka júlí árið 2025.

„Kaup Horns IV á kjölfestuhlut í GoPro er afar ánægjuleg og mikilvæg félaginu. Með því fjármagni sem kemur inn í félagið mun því gefast kostur á að sækja fram og hraða uppbyggingu og umbreytingu félagsins og lausna þess fyrir skýið. Við höfum í gegnum árin leitast við að þróa lausnir í samstarfi við innlenda viðskiptavini og sækja fram með þær erlendis. Þetta er líkan sem gagnast ekki bara okkur heldur einnig okkar viðskiptavinum, auk þess sem það skapar verðmæti fyrir þjóðarbúið. Við munum nú m.a. horfa til aukinnar sóknar á erlendan markað með lausn fyrir dómstóla og tengda starfsemi sem við höfum undirbúið undanfarið“, segir Ólafur Daðason, framkvæmdastjóri og einn stofnanda GoPro.

"Við erum mjög spenntir fyrir þessari nýju fjárfestingu. Félagið er mjög vel rekið með sterka stjórnendur og afburða starfsfólk. Reynsla starfsmanna ásamt einstaklega öguðum ferlum og vottunum mun nýtast í þeirri sókn sem fyrirtækið ætlar í á erlenda markaði. Við höfum trú á þeim vörum sem búið er að þróa innan fyrirtækisins og teljum þær eiga fullt erindi á erlenda markaði“, segja Hermann Már Þórisson og Steinar Helgason, framkvæmdastjórar Horns IV.

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
24. mars 2023

Hagnaður Landsbréfa 814 milljónir króna á árinu 2022

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning fyrir árið 2022.  Helstu niðurstöður voru þessar:
New temp image
10. feb. 2023

Afsláttur við kaup í sjóðum í febrúar

Í febrúar er gefinn 100% afsláttur af gjaldi við kaup í sjóðum Landsbréfa ef keypt er í gegnum app eða netbanka Landsbankans. Afslátturinn gildir til og með 28. febrúar nk.
New temp image
15. nóv. 2022

Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í Eðalfangi sem fyrirhugar mikinn vöxt á næstu árum

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. fjárfestir í Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi félagsins.  Um er að ræða  útgáfu nýs hlutafjár en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til nýtt fjármagn en heildarfjármögnun er 1.000 milljónir króna. Fjármagnið sem kemur inn í félagið verður nýtt til fjárfestinga í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu sem mun nýtast félaginu við uppbyggingu og eflingar á vinnslu til framleiðslu á laxi með áherslu á útflutning og til að fylgja eftir og efla sölu- og markaðsstarf á alþjóðlegum mörkuðum. 
New temp image
24. ágúst 2022

Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2022.
New temp image
25. mars 2022

Hagnaður Landsbréfa 1.410 milljónir á árinu 2021

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2021. 
New temp image
7. mars 2022

Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í S4S

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. hefur gengið frá kaupum á hlut í fyrirtækinu S4S ehf. sem rekur verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskóinn, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. Dótturfélag fyrirtækisins er S4S tæki ehf. sem rekur tækjasölu og verkstæði BRP Ellingsen. Velta samstæðunnar árið 2021 voru tæpir fimm milljarðar króna.
New temp image
19. ágúst 2021

Árshlutauppgjör Landsbréfa 30. júní 2021

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2021. Helstu niðurstöður voru þessar:
New temp image
2. júní 2021

Nýr fjárfestingarsjóður með sjálfbærni að leiðarljósi

Eignadreifing sjálfbær er nýr fjárfestingarsjóður Landsbréfa, dótturfélags Landsbankans. Markmið sjóðsins er að ná fram ávöxtun og dreifingu áhættu með sjálfbærni að leiðarljósi.
New temp image
24. mars 2021

Hagnaður Landsbréfa 768 milljónir á árinu 2020

Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 768 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020. Hreinar rekstrartekjur námu 2.182 milljónum króna á árinu 2020 og eigið fé var 5.059 milljónir króna í árslok.
Vefkökur

Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur