Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2018. Helstu niðurstöður voru þessar:
- Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 844 milljónum króna eftir skatta á árinu 2018.
- Hreinar rekstrartekjur námu 2.030 milljónum króna á árinu 2018 og nam eigið fé í árslok um 4.006 milljónum króna.
- Í lok tímabilsins voru eignir í stýringu 155 milljarðar króna og voru um 12 þúsund einstaklingar og lögaðilar sem áttu hluti í sjóðum Landsbréfa.
- Starfsmenn voru 20 í árslok en fjöldi ársverka á árinu var 19.
Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:
„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu þrátt fyrir krefjandi aðstæður á verðbréfamarkaði og skilaði félagið góðum hagnaði. Ávöxtun sjóða félagsins var almennt góð og skilaði til að mynda Landsbréf – Global Equity Fund bestu ávöxtun allra sjóða á landinu á árinu 2018 samkvæmt Keldunni. Landsbréf munu halda áfram að leggja metnað sinn í að hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspegla það í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, en þar má sem fyrr finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“
Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.









